Útlínur hrepps byggja á gögnum um hreppamörk frá 1904 og eru einungis birtar til viðmiðunar.

Þverárhlíðarhreppur (Þverárhlíð í manntali árið 1703 og Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín árið 1708, Norðtunguþingsókn í jarðatali árið 1753). Sameinaðist Borgarbyggð (Norðurárdals-, Stafholtstungna- og Hraunhreppum og Borgarnesbæ) með Borgar- og Álftaneshreppum árið 1998. Árið 2006 bættust Borgarfjarðarsveit (Andakíls-, Lundarreykjadals-, Reykholtsdals- og Hálsahreppar), Hvítársíðu- og Kolbeinsstaðahreppar við Borgarbyggð. Prestaköll: Hvammur í Norðurárdal til ársins 1911, Stafholt í Stafholtstungum. Sóknir: Norðtunga í Þverárhlíð, Hjarðarholt í Stafholtstungum til ársins 1991, Stafholt til ársins 1751 (einn bær, Arnbjargarlækur).
Björk Ingimundardóttir. Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi. Reykjavík: Þjóðskjalasafn Íslands. 2019.


Þverárhlíðarhreppur

Bæir sem hafa verið í Þverárhlíðarhreppi (26)

Arnarholtskot
⦿ Arnbjargarlækur
⦿ Grjót
⦿ Hamar
⦿ Hamrar
⦿ Helgavatn
Helgavatnssel
⦿ Hermundarstaðir
Hrísnes
⦿ Höfði
⦿ Högnastaðir
⦿ Höll
⦿ Kallsbrekka (Karlsbrekka)
⦿ Kvíakot
⦿ Kvíar
⦿ Lambagerði
⦿ Lundur
⦿ Lækjarkot
⦿ Norðtunga
⦿ Norðurkot
⦿ Sigmundarstaðir
⦿ Spóamýri
Stapakot
⦿ Suðurkot
⦿ Víðirlækur (Veiðilækur)
⦿ Örnúlfsdalur (Örnólfsdalur)
Þverárhlíðarhreppur til 1998.
Þverárhlíðarhreppur varð hluti af Borgarbyggð 1998.