Útlínur hrepps byggja á gögnum um hreppamörk frá 1904 og eru einungis birtar til viðmiðunar.

Sveinsstaðahreppur (svo í manntali árið 1703 en Neðri-Vatnsdalshreppur eða Þingeyrasveit í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín árið 1713, Sveinsstaðaþingsókn í jarðatali árið 1753), sameinaðist Torfalækjar-, Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhreppum í ársbyrjun 2006 undir heitinu Húnavatnshreppur. Áshreppur bættist þar við sumarið 2006. Prestaköll: Þingeyraklaustur, Undirfell til ársins 1906. Sóknir: Þingeyrar, Undirfell til ársins 1971, Másstaðir til ársins 1811.
Björk Ingimundardóttir. Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi. Reykjavík: Þjóðskjalasafn Íslands. 2019.


Sveinsstaðahreppur

Bæir sem hafa verið í Sveinsstaðahreppi (30)

⦿ Bjarnastaðir Biarnestad, Bjarnastaðr, Bjarnarstaðir
⦿ Breiðabólsstaður Breiðabólstaður, Breidebolstad, Breiðibólstaður, Breíðabólstaður, Breiðabólstaður í Þingi
⦿ Brekka
⦿ Brekkukot Brekkekot
⦿ Geirastaðir Geÿrestad, Geírastaðir
⦿ Geitaból Geítaból
⦿ Grundarkot Grunderkaat
⦿ Hagi Hage
⦿ Helgavatn Helgevand
⦿ Hjallaland Hialleland
⦿ Hnausar
Hnausasel
⦿ Hnjúkur Hnuk, Hnuker, Hnúkur, Hnjúkar, Hnjúki
⦿ Hólabak Holebak
⦿ Leysingjastaðir Leisingiastad, Leysíngjastaðir, Leýsíngjastaðir
⦿ Litla-Giljá Litla Giljá, Litla Gilaae, Litlagilá, Litlagiljá, Giljá litla, Litlugiljá
⦿ Másstaðir Mársstaðir, Marstad, Másstaðir 1, Másstaðir 2, Márstaðir
⦿ Miðhús Midhus
⦿ Ranhólar
Skammbeinskot
Skólahús
⦿ Steinkot
⦿ Steinnes Steennæs, Steinsnes
⦿ Sveinsstaðir Svendstad, Sveinstaðir
Torfustaðakot
⦿ Umsvalir Umsvaler
⦿ Vatnsdalshólar Hólar, Holar, Vatnsdalshóla
⦿ Þingeyrar Þingeyraklaustur, Thingöreklöster, Þingeyjarklaustur, Þíngeyrar, Þingeýrar
Þingeyrasel Búfótur, Þingeirasel
⦿ Öxl
Sveinsstaðahreppur til 2006.
Sveinsstaðahreppur varð hluti af Húnavatnshreppi 2006.